Valsmenn mæta Fram í úrslitaleiknum

Valsmaðurinn Sigfús Páll Sigfússon brýst framhjá tröllauknum varnarmönnum Stjörnunnar.
Valsmaðurinn Sigfús Páll Sigfússon brýst framhjá tröllauknum varnarmönnum Stjörnunnar. Ómar Óskarsson

Valur og Fram mætast í úrslitum  Eimskipsbikarkeppninnar í handknattleik karla en Valur hafði betur gegn Víkingum, 38:32, í tvíframlengdum leik í Víkinni. Víkingar, sem leika í næst efstu deild, náðu að jafna í 30:30 á lokasekúndum fyrri framlengingarinnar en liðið gaf eftir í síðari framlengingunni.

Baldvin Þorsteinsson skoraði 10 mörk fyrir Val og Arnór Þór Gunnarsson var með 7 mörk. Í liði Víkings var Ásbjörn Stefánsson með 10 mörk og Þórir Júlíusson skoraði 7.

Þórir  jafnaði metin á lokasekúndum í fyrri  framlengingunni en staðan var 25:25, að loknum venjulegum leiktíma en Víkingar voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 14.12. 

Þórir Júlíusson leikmaður Víkings tók aukakast þegar venjulegum leiktíma var lokið en skot hans hafnaði í stönginni. 

Valsmenn voru fjórum mörkum undir, 14:10, þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert