Andri Berg fer ekki í leikbann

Brynjar Gauti

Andri Berg Haraldsson, leikmaður Fram í handknattleik, fer ekki í bann þrátt fyrir að vera útilokaður úr leik Fram og Akureyrar á dögunum. Hann og Nikola Jankovic, leikmaður Akureyrar, voru þá útilokaðir og fær Jankovic tveggja leikja bann.

Jankovic sló Andra Berg seint í fyrri hálfleik og voru þeir báðir útilokaðir frá frekari þátttöku í leiknum. Í niðurstöðu aganefndar HSÍ, sem tók málið fyrir í dag, kemur fram að dómarar leiksins hafi í greinargerð sinni sagt að Andri Berg hafi ekki gert neitt til að verðakulda rautt spjald.

Niðurstaða aganefndar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert