Guðmundur tekur við landsliðinu

Frá blaðamannafundi þar sem tilkynnt var um ráðningu Guðmundar Þórðar.
Frá blaðamannafundi þar sem tilkynnt var um ráðningu Guðmundar Þórðar. Árvakur/Kristinn

Guðmundur Þórður Guðmundsson mun taka við íslenska landsliðinu í handknattleik. Tilkynnt var um þetta á blaðamannafundi sem nú stendur yfir.

Guðmundur mun taka við landsliðinu og stýra því í forkeppni Ólympíuleikanna og í leikjunum við Makedóníu um laust sæti á næsta heimsmeistaramóti. Hann mun einnig halda áfram með liðið og stýra því á Ólympíuleikunum komist liðið þangað.

Sjá nánar í hádegisfréttum sjónvarps mbl.is

Guðmundur var aðstoðarþjálfari hjá Alfreð í fyrra.
Guðmundur var aðstoðarþjálfari hjá Alfreð í fyrra. Günter Schröder
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert