Stjarnan er deildabikarmeistari kvenna í handbolta

Stjarnan sigraði Hauka í æsispennandi leik í dag.
Stjarnan sigraði Hauka í æsispennandi leik í dag. mbl.is/ hag

Stjarnan sigraði Hauka í úrslitaleik N1 deildabikarkeppninnar í handbolta rétt í þessu, 27:28. Hanna G. Stefánsdóttir fékk gullið tækifæri til að jafna leikinn úr víti þegar leiktíminn var úti, en skaut í stöngina.

Leikurinn var hraður og spennandi allann tímann, en Haukar náðu 4 marka forskoti um miðbik síðari hálfleiks. Stjörnustúlkur brettu þá upp ermarnar og tóku á sig rögg.

Markahæst hjá Stjörnunni var Alina Petrache með 12 mörk, þar af 6 úr vítum. Hjá Haukum var Ramune Pekskyte með 9 mörk.

Nánar verður fjallað um leikinn í Morgunblaðinu á morgun.

Leik lokið 

58. Stjarnan kemst marki yfir þegar ein og hálf mínúta er eftir. 

55. Stjarnan nær góðum kafla og jafnar í 25:25 og 26:26.

50. Haukar missa forskot sitt í 2 mörk en ná að auka það aftur í 3 mörk.  

45. Haukar ná 4 marka forskoti og virðast ákveðnari  þessa stundina.  Heiða Ingólfsdóttir í marki Hauka hefur varið 8 skot síðan hún kom inná og er að leggja grunninn að undirtökum liðsins.

40. Enn er jafnt á öllum tölum og útlit fyrir hörkuleik. Markverðir beggja liða eru í stuði og leikurinn hraður og skemmtilegur.

35.  Síðari hálfleikur hefst líkt og sá fyrri endaði, jafnt er á öllum tölum.

Hálfleikur. Staðan er  14:14  í hörkuleik milli tveggja sterkra liða. Alina Petrache hefur átt stórleik fyrir Stjörnuna, gert 7 mörk og ljóst að Haukar þurfa að stoppa hana í þeim síðari. Ramune Pekasyte hefur gert 4 mörk fyrir Hauka.

25. Leikurinn er mjög hraður og spennandi og ekkert virðist komast á milli liðanna, því jafnt er á öllum tölum. 

20. Haukar náðu tveggja marka forystu en Stjarnan jafnaði metin. 

15.  Haukar hafa náð forskotinu að nýju, en leikurinn er enn í járnum

10. Leikurinn er hnífjafn og mjög hraður. Bæði lið ætla sér sigur í leiknum, en Stjarnan hefur náð yfirhöndinni eftir slæma byrjun. 

5. Bæði lið mæta ákveðin til leiks en Haukarnir komust í 3:0 og virkuðu frískari. Stjarnan hefur hinsvegar stimplað sig inn í leikinn og allt lítur út fyrir hörkuleik.

Gangur leiksins: 1:0, 3:0, 4:1, 4:3, 4:5, 5:6,  7:7, 9:8, 10:10, 12:11, 13.12, 14:14, 15:14, 16:16, 19:18, 21:18, 23:20, 24:21, 25:25,  26:26, 28:27,  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert