Heldur sigurganga FH-inga áfram?

Logi Geirsson verður í eldlínunni með FH gegn Selfoss í kvöld. stækka

Logi Geirsson verður í eldlínunni með FH gegn Selfoss í kvöld. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Þriðja umferð í úrvalsdeild karla í handknattleik hefst í kvöld með þremur leikjum en umferðinni lýkur á laugardaginn þegar Akureyri og Fram leiða saman hesta sína fyrir norðan.

Í Kaplakrika eigast við FH og nýliðar Selfoss. FH-ingar hafa byrjað tímabilið með látum. Þeir lögðu nýliða Aftureldingar með níu marka mun í fyrstu umferðinni og léku sama leik gegn Íslands- og bikarmeisturum Hauka um síðustu helgi. Selfyssingar unnu góðan sigur á Valsmönnum í síðustu viku eftir tap á móti Fram í fyrstu umferðinni.

Í Vodafone-höllinni taka Valsmenn á móti HK-ingum. Valsmenn eru með bakið upp að vegg en þeir hafa tapað fyrstu tveimur leikjum sínum. HK steinlá fyrir Akureyri í 1. umferðinni en bætti fyrir það með því að leggja Fram að velli í síðustu viku.

Í Mosfellsbæ fá nýliðar Aftureldingar meistaralið Hauka í heimsókn. Mosfellingar hafa tapað báðum leikjum sínum, gegn FH og Akureyri, en hið unga lið sýndi þó ágæta takta í báðum leikjunum. Haukarnir vilja örugglega komast á sigurbraut eftir niðurlæginguna gegn FH en í fyrstu umferðinni unnu þeir sannfærandi sigur á Val.

Leikir kvöldsins hefjast allir klukkan 19.30.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar

Föstudaginn 17. febrúar

Fimmtudaginn 16. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar


finnur.is