Gísli lánaður frá Haukum til ÍBV

Gísli Jón Þórisson.
Gísli Jón Þórisson. mbl.is/Golli

Handboltamaðurinn Gísli Jón Þórisson hefur verið lánaður frá Haukum til ÍBV fram til vorsins. Gísli Jón er öflugur varnarmaður og ágæt skytta sem leikið hefur allan sinn feril með Haukunum.

Hann mun án efa styrkja Eyjaliðið sem er í fjórða sæti 1. deildarinnar með 11 stig, átta stigum á eftir toppliði Gróttu sem einnig bar víurnar í Gísla Jón, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert