Daníel: Einn okkar besti leikur

Daníel Andrésson, markvörður FH, lék afar vel í marki FH eftir að hann kom inn á um miðjan fyrri hálfleik. Hann segir FH-liðið hafa leikið einn sinn besta leik á keppnistímabilinu í kvöld þegar það lagði Fram, 32:21, í oddaleik í Kaplakrika.

Þar með er ljóst að FH leikur við Akureyri í úrslitum N1-deildar karla í handknattleik en rimma liðanna hefst í Íþróttahöllinni á Akureyri á þriðjudaginn eftir páska.

„Við verðum að gera betur en síðast gegn Akureyri," sagði Daníel en FH og Akureyri léku þrisvar sinnum á einni viku í vetur, tvísvar í deild og einu sinni í bikarkeppninni og vann Akureyri báða leikina nyrðra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert