Dómari í frí vegna bjórdrykkju

Handbolti.
Handbolti. mbl.is

Dómaranefnd Handknattleikssambands Íslands hefur ákveðið í samráði við Júlíus Sigurjónsson, handknattleiksdómara, að hann taki frí frá dómgæslu út yfirstandandi leiktíð.

Júlíus var ásakaður af Svavari Vignissyni þjálfari kvennaliðs ÍBV, um að hafa mætt til leiks og dæmt viðureign Gróttu og ÍBV í úrslitakeppni kvenna á síðasta laugardag angandi af vínlykt. Dómaranefndin segir að þó engin gögn sanni ásakanir Svavars þá sé rétt að Júlíus taki sér hlé frá dómgæslu þar sem framkoma hans hafi ekki verið í anda heilbrigðrar íþróttastefnu, segir m.a. í yfirlýsingu sem Dómaranefnd HSÍ sendi frá sér fyrir stundu. Júlíus mun hafa viðurkennt að hafa drukkið bjór kvöldið fyrir leik en hætt 14 tímum áður en umræddur leikur hófst.

Yfirlýsing Dómaranefndar HSÍ:

„Varðar: Ásökun þjálfara ÍBV á hendur dómara í leik Gróttu og ÍBV 14. apríl sl.

Á fundi dómaranefndar í dag var tekið fyrir mál þar sem Júlíus Sigurjónsson var ásakaður af þjálfara ÍBV um að hafa mætt til leiks angandi af áfengi að dæma leik Gróttu og ÍBV í úrslitakeppni kvenna þann 14. apríl sl.  Eftir að hafa skoðað gögn sem snerta málið þá getur dómaranefnd ekki tekið undir þær ásakanir.

Kvöldið fyrir leik drakk umræddur dómari bjór á opinberum stað og liðu meira en 14 klukkustundir frá því síðasti bjór var drukkin þar til leikur hófst.  

Þrátt fyrir það að ekki hafi fundist áfengislykt af dómaranum þá er framkoma hans ekki í anda heilbrigðrar íþróttastefnu.

Dómaranefnd hefur því ákveðið í samráði við umræddan dómara að hann taki sér frí til loka keppnistímabilsins.

Fyrir hönd dómaranefndar HSÍ
Guðjón L. Sigurðsson, formaður“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert