Nantes í úrslitaleikinn

Gunnar Steinn Jónsson.
Gunnar Steinn Jónsson. Sylvain Artu

Gunnar Steinn Jónsson gerði tvö mörk fyrir Nantes þegar liðið lagði danska liðið Team Tvis Holstebro 26:20 í undanúrslitum EHF-bikarsins í handknattleik.

Með sigrinum tryggði liðið sér rétt til að spila til úrslita á morgun við Göppingen eða Rhein-Neckar Löwen, en leikur þeirra er síðar í dag.

Varnarleikur franska liðsins var sérlega góður og réðu Danir ekkert við hann. Staðan í leikhléi var 11:9 fyrir Nantes sem var mjög vel stutt af fjölmörgum áhorfendum, en úrslitakeppnin fer fram í Nantes.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert