Mikil eftirvænting í Ólafsvík

Gríðarleg eftirvænting er nú í Ólafsvík vegna landsleiks Íslands og Austurríkis sem fram fer í íþróttahúsinu í dag klukkan 16. Handknattleikssambandið var með æfingar í morgun fyrir rúmlega 100 börn sem kynntust göldrum íþróttarinnar.

Einnig segir sagan að Jón Þór Lúðvíksson bakarameistari Brauðgerðar Ólafsvíkur hafi vaknað eldsnemma í morgun til þess að baka vínarbrauð fyrir Guðjón Val Sigursson og hans félaga.

Myndir eru frá æfingu barna í íþróttahúsinu í Ólafsvík í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert