Lið Atla Ævars og Antons fallið

Atli Ævar Ingólfsson skoraði 8 mörk í tapi Nordsjælland.
Atli Ævar Ingólfsson skoraði 8 mörk í tapi Nordsjælland. Ljósmynd/nordsjaelland-haandbold.dk

Nordsjælland, lið þeirra Antons Rúnarssonar og Atla Ævars Ingólfssonar, féll úr dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld.

Nordsjælland tapaði fyrir Skanderborg, 30:25, í umspili í gær og þau úrslit þýddu að Nordsjælland er fallið. Atli Ævar var markahæstur í liði Nordsjælland með 8 mörk og næstur kom Anton með 5 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert