Karlalið FH í handknattleik er í þjálfaraleit en nú liggur ljóst fyrir að Einar Andri Einarsson lætur af störfum hjá félaginu eftir tímabilið.
Kristján Arason, sem kom inn í þjálfarateymið hjá FH fyrir nokkrum vikum, kemur ekki til með að þjálfa liðið á næstu leiktíð en hann gaf forráðamönnum FH afsvar í gær.
Halldór Jóhann Sigfússon sem hefur þjálfað kvennalið Fram undanfarin ár en er hættur hjá Safamýrarliðinu hefur verið orðaður við þjálfarastöðuna hjá FH. Ásgeir Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH, staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær að rætt hefði verið við Halldór Jóhann.
Sjá nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.