Daníel Freyr með FH á ný

Daníel Freyr Andrésson er í leikmannahóp FH í kvöld í …
Daníel Freyr Andrésson er í leikmannahóp FH í kvöld í fyrsta sinn síðan snemma í desember á síðasta ári. mbl.is/Kristinn

Daníel Freyr Andrésson, markvörður FH, er í leikmannahóp liðsins í fyrsta undanúrslitaleik Hauka og FH í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik, en leikur liðanna hefst klukkan 19.15 á Ásvöllum.

Daníel Freyr braut bátsbein í hendi um miðjan desember og hefur ekkert leikið með FH-liðinu síðan. Óvíst er hve mikið eða hvort hann mun spila eitthvað með FH í kvöld, en hann er þó í það minnsta í leikmannahóp liðsins og er ásamt Ágústi Elí Björgvinssyni skráður markvörður í liðinu.

Fylgst er með gangi mála í leik Hauka og FH hér á mbl.is og má sjá textalýsinguna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert