15 marka tap hjá Stjörnunni

Skúli Gunnsteinsson er þjálfari Stjörnunnar.
Skúli Gunnsteinsson er þjálfari Stjörnunnar. mbl.is/þgs

Karlalið Stjörnunnar í handknattleik tapaði með 15 marka mun fyrir þýska liðinu Melsungen í æfingaleik sem háður var í Þýskalandi.

Staðan eftir fyrri hálfleikinn var 20:15, Melsungen í hag en í seinni hálfleik keyrðu Þjóðverjarnir yfir Garðabæjarliðið sem er að undirbúa sig fyrir átökin í Olís-deildinni sem hefst seinnipartinn í september en tímabilið í Þýskalandi hefst hinsvegar um næstu helgi. Lokatölur urðu 37:22.

Ari Magnús Þorgeirsson var markahæstur í liði Stjörnunnar með 6 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert