Guðjón Valur markahæstur í fyrsta leik

Guðjón Valur Sigurðsson með Barcelona-treyjuna.
Guðjón Valur Sigurðsson með Barcelona-treyjuna. Ljósmynd/barcelona.es

Guðjón Valur Sigurðsson fór vel af stað með sínu nýja liði Barcelona í frumraun sinni fyrir félagið þegar það vann sigur á þýska liðinu Minden í æfingaleik í Þýskalandi, 31:30.

Guðjón Valur var markahæstur hjá Barcelona með 7 mörk, þar af 2 úr vítaköstum. Frakkinn Nikola Karabatic kom næstur með 6 mörk.

Þetta var fyrsti æfingaleikur Börsunga á undirbúningstímabilinu en þeir mæta næst Toulouse í Frakklandi  28. ágúst. HM félagsliða er svo dagana 7.-12. september í Katar þar sem Barcelona á titil að verja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert