Framarar mæta Granollers

Karlalið Fram í handknattleik.
Karlalið Fram í handknattleik. mbl.is

Karlalið Fram í handknattleik heldur utan í æfinga- og keppnisferð til Spánar á morgun til undirbúnings fyrir komandi tímabil.

Fram mun í ferðinni, sem er skipulögð af ÍT-ferðum í samvinnu við Guðlaug Arnarsson þjálfara Fram og þjálfara Granollers, leika nokkra æfingaleiki gegn sterkum spænskum félagsliðum, m.a. BM Granollers, sem Framarinn Atli Hilmarsson lék með um nokkurra ára skeið, við mjög góðan orðstír og eins Valsmaðurinn Geir Sveinsson um tíma. Leiknum verður sjónvarpað beint af Catalunya Television.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert