Meira að segja Alfreð Gísla tók ísfötuáskorun

Alfreð Gíslason.
Alfreð Gíslason. EPA

Þessa dagana virðist hver íþróttamaðurinn á fætur öðrum fá áskorun að láta hella yfir sig fötu af ísmolum og ísköldu vatni og skora á þrjá aðra. Myndbönd af mörgum af þekktustu íþróttmönnum bæði Íslands og heims hafa tekið áskoruninni og hér fyrir neðan má sjá þann nýjasta til að taka áskoruninni.

Alfreð Gíslason þjálfari Þýskalandsmeistara Kielar lét sig ekki muna um að standast áskorunina og hellti ísvatninu sjálfur yfir sig á gólfinu í miðri keppnishöll Kielar eins og sjá má hér fyrir neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert