Níu marka sigur hjá Frömurum

Garðar Sigurjónsson skoraði 6 mörk fyrir Fram.
Garðar Sigurjónsson skoraði 6 mörk fyrir Fram. mbl.is/Ómar

Fram vann öruggan sigur á KR, 32:23, á Reykjavíkurmóti karla í handknattleik í kvöld.

Staðan var jöfn, 14:14, í hálfleik en í síðari hálfleik tóku Framarar völdin og innbyrtu níu marka sigur.

Garðar Sigurjónsson og Elías Bóasson skoruðu 6 mörk hvor fyrir Fram og Þröstur Bjarkarson skoraði 5.

Hjá KR var Jóhann Gunnarsson með 5 mörk og þeir Eyþór Westmann og Sigurbjörn Markússon voru með 4 hvor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert