ÍBV lagði Íslandsmeistarana

Ester Óskarsdóttir var öflug hjá ÍBV í kvöld gegn Val.
Ester Óskarsdóttir var öflug hjá ÍBV í kvöld gegn Val. mbl.is/Kristinn

ÍBV fagnaði í kvöld tveggja marka sigri á Íslandsmeisturum Vals í handbolta, þegar ÍBV hafði betur í viðureign liðanna í 2. umferð Olís-deildar kvenna í kvöld, 27:25 en hálfleikstölur voru 17:12 fyrir ÍBV.

Eyjakonur eru þar með komnar með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðir deildarinnar, rétt eins og Fram. Valur er hins vegar með 2 stig, eftir sigur á KA/Þór í 1. umferð um helgina.

Mörk ÍBV: Díana Dögg Magnúsdóttir 7, Ester Óskarsdóttir 6, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 5, Vera Lopes 3, Telma Amado 2, Arna Þyrí Ólafsdóttir 2, Drífa Þorvaldsdóttir 1, Elín Anna Baldursdóttir 1.

Mörk Vals: Sigurlaug Rúnarsdóttir 8, Jónína Líf Ólafsdóttir 7, Marija Mugosa 3, Bryndís Elín Wöhler 3, Morgan Marie Þorkelsdóttir 2, Vigdís Birna Þorsteindóttir 1, Ragnhildur Hjartardóttir 1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert