Alexander í hópi þeirra markahæstu

Alexander Petersson.
Alexander Petersson. Ljósmynd/rhein-neckar-loewen.de

Landsliðsmaðurinn Alexander Petersson, leikmaður Rhein-Neckar Löwen, er í áttunda sæti yfir markahæstu leikmenn í þýsku Bundesligunni í handknattleik.

Alexander hefur skorað 32 mörk og hafa þau öll komið utan að velli. Michael Allendorf úr Melsungen er markahæstur í deildinni með 51 mark, Robert Weber úr Magdeburg kemur næstur með 50 og í þriðja sæti er Raul Santos, leikmaður Gummersbach, með 46 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert