Hrun í síðari hálfleik

Arnór Atlason
Arnór Atlason mbl.is/Eva Björk

Arnór Atlason skoraði tvö mörk úr fimm skotum þegar lið hans Saint Raphael tapaði fyrir Montpellier, 34:27, á heimavelli í frönsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Leikuri Saint Raphael hrundi í síðari hálfleik þegar liðið skoraði aðeins 10 mörk en fékk á sig á sama tíma 19 mörk. 

Saint Raphael  situr í 5. sæti með sjö stig að loknum sex leikjum. Montpellier er á toppnum ásamt Nantes með 11 stig eftir sex leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert