15 marka útisigur hjá Kiel í Meistaradeildinni

Alfreð Gíslason þjálfari Kiel.
Alfreð Gíslason þjálfari Kiel. AFP

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar rótburstuðu Metalurg á útvelli í Meistaradeildinni í handknattleik í kvöld.

Þýsku meistararnir fögnuðu 15 marka sigri, 42:27, en leikurinn fór fram á heimavelli Metalurg í Makedóníu.

Domagoj Djuvnak var markahæstur í liði Kiel með 8 mörk, Canellas skoraði 7 sem og Marko Vujin og Dominik Klein var með 6 mörk. Aron Pálmarsson var fjarri góðu gamni í liði Kiel en hann er frá keppni vegna meiðsla.

Kiel hefur unnið þrjá af fjórum leikjum sínum en Metalurg hefur tapað öllum fjórum leikjum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert