Sigurbergur með 6 mörk í tapleik

Sigurbergur Sveinsson í leik með Haukum á síðasta keppnistímabili.
Sigurbergur Sveinsson í leik með Haukum á síðasta keppnistímabili. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Sigurbergur Sveinsson skoraði 6 mörk fyrir Erlengen í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag.

Það dugði þó skammt því Erlengen tapaði fyrir Minden, 29:25, á útivelli.

Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 2 af mörkum Hannover-Burgdorf þegar liðið gerði jafntefli við Göppingen á heimavelli, 29:29.

Hannover er í 9. sæti deildarinnar með 10 stig en Erlangen er í 16. sætinu með 6 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert