Stórsigrar hjá Svíum og Króötum

Niklas Ekberg.
Niklas Ekberg. AFP

Svíar og Króatar unnu örugga sigra gegn andstæðingum sínum í undankeppni EM í handknattleik í kvöld.

Svíra tóku á móti Lettum og lönduðu tíu marka sigri, 33:23. Niclas Ekberg og Frdrik Peterson skoruðu 6 mörk hvor fyrir Svía en hjá Lettum var Dainis Kristopans markahæstur með 8 mörk.

Króatar áttu ekki í neinum vandræðum með Hollendinga á heimavelli en lokatölur urðu, 35:24. Ivan Cupic og Ivan Sliskovic skoruðu 6 mörk hvor fyrir Króata en hjá Hollendingum var Bobby Schagen markahæstur með 6 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert