Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari Dana í handknattleik mun tefla fram sama leikmannahópi í leiknum gegn Bosníumönnum á sunnudaginn sem vann Litháa með tíu marka mun í undankeppni EM í gærkvöld.
Guðmundi finnst engin ástæða til að breyta og þar með sitja þeir Casper U. Mortensen, Nikolaj Markussen og Kasper Nielsen eftir heima en Danir mæta Bosníumönnum á útivelli á sunnudaginn.
Guðmundi er vel kunnugt að það voru Bosníumenn sem gerðu draum Íslendinga að engu að taka þátt í úrslitakeppni HM í Katar í janúar á næsta ári en þeir höfðu betur í umspili þjóðanna í sumar.