Birna markahæst í stórsigri

Birna Berg Haraldsdóttir verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu í …
Birna Berg Haraldsdóttir verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu í lok mánaðarins. mbl.is/Golli

Birna Berg Haraldsdóttir og stöllur hennar í Sävehof hafa unnið alla átta leiki sína í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik til þessa og hafa tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar.

Sävehof vann stórsigur á Skånela á útivelli í kvöld, 37:19, en Skänela er í þriðja neðsta sæti deildarinnar. Birna var markahæst í leiknum ásamt Juliu Eriksson en þær skoruðu 6 mörk hvor.

Birna er að vanda í íslenska landsliðshópnum sem valinn var í gær fyrir komandi leiki við Ítalíu og Makedóníu í undankeppni HM, dagana 27. nóvember til 6. desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert