Tandri markahæstur í mikilvægum sigri

Tandri Már Konráðsson.
Tandri Már Konráðsson. Ljósmynd/Ricohhandboll.se

Tandri Már Konráðsson átti enn og aftur góðan leik fyrir Ricoh í kvöld þegar liðið vann Lund á útivelli, 27:23, í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik.

Tandri var annar af markahæstu mönnum Ricoh í leiknum með sex mörk.

Sigurinn var afar mikilvægur fyrir Ricoh en liðið er nú með 11 stig eftir 14 leiki. Liðið situr í 11. sæti af 14 liðum en Lund er í 13. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert