Enn einn sigurinn hjá Aroni

Aron Kristjánsson
Aron Kristjánsson Eva Björk Ægisdóttir

Lærisveinar Arons Kristjánssonar í KIF Kolding Köbenhavn halda sigurgöngu sinni áfram í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. KIF vann í kvöld þrettánda sigur sinn í deildinni þegar það lagði Team Tvis Holstebro, 24:19, á útivelli. KIF er langefst í  deildinni með 27 stig að loknum 14 leikjum og er átta stigum á undan Skjern og Aalborg Håndbold.

Aalborg Håndbold vann SönderjyskE í heimavelli í kvöld, 28:24. Ólafur Gústafsson skoraði ekki mark í leiknum fyrir Álaborgarliðið. Daníel Freyr Andrésson stóð í marki SönderjyskE í fjarveru aðalmarkvarðarins Anders Petersen.  SönderjyskE er í sjötta sæti með 15 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert