Hrikalega agaðir sóknarlega

„Þetta var frábær leikur og ég er ánægður með strákana í dag. Við byrjuðum þetta af krafti og héldum þeim frá okkur allan tímann. Varnarlega var þetta mjög flott og markverðirnir voru góðir,“ sagði Gunnar Magnússon eftir átta marka sigur á Akureyri í Olís-deild karla í handknattleik 28:20.

„Vörnin hefur verið fín í síðustu leikjum en það eru aðallega tæknifeilarnir sóknarlega sem hafa verið að drepa okkur og liðin hafa náð mörgum auðveldum mörkum úr hröðum upphlaupum. Í dag vorum við hrikalega agaðir sóknarlega og gáfum fá færi á okkur. Þeir þurftu að stilla upp í hverri einustu sókn, sem var svolítið lykillinn að þessu,“ sagði Gunnar Magnússon en nánar er rætt við hann í myndskeiðinu hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert