Úrslitaleikir deildabikarsins í dag

Alexander Örn Júlíusson úr Val reynir skot að marki FH …
Alexander Örn Júlíusson úr Val reynir skot að marki FH í leik liðanna í gær. mbl.is/Styrmir Kári

Úrslitaleikirnir í deildabikar karla og kvenna í handknattleik fara fram í dag í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.

Fram og Stjarnan mætast í úrslitaleik kvenna klukkan 13 og Valur og Afturelding í úrslitaleik karla klukkan 15.

Stjarnan vann Gróttu í æsispennandi leik í kvennaflokki, 26:25, í gær og Fram vann ÍBV all örugglega, 34:28.

Í karlaflokki vann Valur sigur á FH í tvíframlengdum leik, 32:28, og Afturelding sigraði ÍR, 26:20.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert