Bjarki með átta mörk í sigri

Bjarki Már Elísson skoraði átta mörk í kvöld.
Bjarki Már Elísson skoraði átta mörk í kvöld. Ljósmynd/thsv-eisenach.de

Bjarki Már Elísson átti stórleik og skoraði átta mörk fyrir ThSV Eisenach í þýsku 2. deildinni í handknattleik í kvöld en liðið vann TV 1893 Neuhausen 27:24 á útivelli.

Bjarki Már spilaði frábærlega og var markahæstur á vellinum en liðsfélagi hans Hannes Jón Jónsson var ekki í leikmannahópi liðsins.

Eisenach hefur nú unnið tvo leiki í röð og hefur 34 stig og er í 5. sæti deildarinnar.

Fannar Friðgeirsson var einnig í sigurliði í kvöld þegar lið hans TV Großwallstadt vann TUSEM Essen naumlega 21:22 á útivelli.

Fannar skoraði tvö mörk og skoraði annað þeirra á mikilvægum tímapunkti, en hann kom liðinu í 21:19 þegar skammt var eftir.

Großwallstadt er í 7. sæti deildarinnar með 33 stig, stigi á eftir Bjarka og félögum en liðið hefur jafn mörg stig og ASV Hamm-Westfalen í 6. sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert