Grótta tryggði sér í kvöld efsta sætið í 1. deild karla í handknattleik og þar með sæti í Olís-deildinni næsta vetur.
Grótta hélt á Selfoss og vann þar Míluna 29:22 eftir að hafa verið 13:11 yfir að loknum fyrri hálfleik.
Örn Þrastarson skoraði 12 mörk fyrir heimaliðið en Viggó Kristjánsson gerði 9 fyrir Gróttu.
Þá vann Víkingur lið Selfyssinga, 27:24, en Selfoss var einu marki yfir í hálfleik, 12:11.