Aron með þrjú og Kiel á toppinn

Aron Pálmarsson skoraði þrjú fyrir Kiel í dag.
Aron Pálmarsson skoraði þrjú fyrir Kiel í dag. MARC MUELLER

Stórskyttan Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk fyrir Kiel í auðveldum 36:22 sigri þeirra á HC Erlangen í þýsku 1. deildinni í dag. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar hjá Kiel komust þar með í efsta sæti deildarinnar en þeir eiga í harðri toppbaráttu við ljónin úr Rhein-Neckar Löwen.

Sigurbergur Sveinsson komst ekki á blað fyrir heimamennina í Erlangen en þeir eru í 18. sæti deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert