Elín Anna til liðs við FH

Elín Anna ásamt Ásgeiri Jónssyni formanni handknattleiksdeildar FH.
Elín Anna ásamt Ásgeiri Jónssyni formanni handknattleiksdeildar FH. Ljósmynd/FH

Elín Anna Baldursdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild FH og mun því leika með liðinu í Olísdeild kvenna næstu tvö árin.

„Það er frábært að fá Elínu Önnu heim, hún þekkir vel til FH og veit að hér er gott að vera. Mikill styrkur fyrir okkur. Við ætlum okkur stóra hluti á næstu árum og Elín Anna smellpassar inní þau áform okkar,“ segir Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar FH en Elín lék ÍBV á síðustu leiktíð þar sem hún skoraði 39 mörk í 21 leik. Hún lék áður með FH

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert