Hansen hjá PSG til 2019

Mikkel Hansen.
Mikkel Hansen. EPA

Danski landsliðsmaðurinn í handknattleik, Mikkel Hansen, hefur framlengt samning sinn við PSG til fjögurra ára eða fram á mitt árið 2019. Hansen greinir frá þessu á Twitter-síðu sinni í dag.

Fréttirnar koma nokkuð á óvart því Frakkinn Nikola Karabatic hefur verið sterklega orðaður við PSG og að félagið hafi jafnvel þegar gengið frá kaupum á honum frá Barcelona þótt það hafi ekki verið upplýst. Verði af þeim kaupum er hætt við að Hansen leiki minna en áður með franska stórliðinu. Um tíma í vor var Hansen orðaður við þýska meistaraliðið Kiel en nú er ljóst að ekkert verður af skiptum hans þangað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert