Róbert skoraði fimm og Paris SG á toppinn

Róbert Gunnarsson skoraði fimm mörk í kvöld.
Róbert Gunnarsson skoraði fimm mörk í kvöld. AFP

Róbert Gunnarsson skoraði fimm mörk fyrir Paris SG þegar liðið hrósaði sigri gegn Saint Raphael, 27:22, í frönku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Þetta var lokaleikurinn í næstu síðustu umferð deildarinnar og með sigrinum komst Paris SG á topp deildarinnar. Paris SG er með 43 stig en Montpellier er stigi á eftir með 42 stig.

Danski landsliðsmaðurinn Mikkel Hansen, sem í gær framlengdi samning sinn við Parísarliðið, var markahæstur með 7 mörk og næstur kom Róbert með fimm mörk eins og áður segir. Arnór Atlason skoraði 2 mörk fyrir Saint Raphael.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert