Grátlegt tap hjá Arnóri og Björgvin

Arnór Þór Gunnarsson fagnar marki.
Arnór Þór Gunnarsson fagnar marki. Ljósmynd/bhc06.de

Bergischer, lið Arnórs Þórs Gunnarssonar og Björgvins Páls Gústavssonar, tapaði naumlega fyrir Melsungen á heimavelli, 29:28, þegar liðin mættust í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag.

Bergischer var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 16:14, en mikið jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik. Bergischer hafði tveggja marka forystu þegar tíu mínútur voru eftir, en fengu þrjú mörk á sig í röð áður en þeir jöfnuðu í 28:28 þegar innan við mínúta var eftir. Melsungen fór í sókn og tryggði sér sigurinn á síðustu andartökum leiksins, 29:28.

Arnór Þór Gunnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Bergischer og Björgvin stóð vaktina að vanda í markinu. Liðið er í þrettánda sæti af nítján liðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert