Eva og Sunna áfram með meisturunum

Eva Margrét Kristinsdóttir fagnar bikarmeistaratitlinum í vetur.
Eva Margrét Kristinsdóttir fagnar bikarmeistaratitlinum í vetur. mbl.is/Eva Björk

Eva Margrét Kristinsdóttir og Sunna María Einarsdóttir, leikmenn Íslands- og bikarmeistaraliðs Gróttu í handknattleik, verða áfram í herbúðum liðsins á næstu leiktíð. Þær hafa báðar skrifað undir samning þess efnis.

Sunna María kom til Gróttu fyrir fjórum árum frá Fylki og átti sinn þátt í að tryggja liðinu Íslandsmeistaratitilinn nú í vor, í fyrsta sinn. Eva Margrét tók fram skóna síðasta haust og var í lykilhlutverki í vörn Gróttu í vetur.

Sunna María Einarsdóttir skorar í leik gegn Stjörnunni í úrslitum …
Sunna María Einarsdóttir skorar í leik gegn Stjörnunni í úrslitum Íslandsmótsins. mbl.is/Eva Björk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert