Eva Björk til liðs við Val

Eva Björk Hlöðversdóttir
Eva Björk Hlöðversdóttir Ljósmynd / fimmeinn.is

Eva Björk Hlöðversdóttir hefur gengið til liðs við Val í Olís deild kvenna í handbolta. Eva Björk gerir eins árs samning við Val. Eva mun leika undir stjórn eiginmanns síns, Alfreðs Finnssonar á Hlíðarenda á næsta tímabili hið minnsta. Þetta kemur fram á vefsíðunni fimmeinn.is. 

Eva hefur sem er 35 ára gömul er uppalinn hjá Gróttu og hefur auk þess leikið með ÍBV hér á landi. Þá hefur Eva leikið undir stjórn Alfreðs Finnssonar hjá Hamar í Noregi undanfarin ár.

Eva á að baki 14 leiki með A landsliði Íslands og ljóst að með komu hennar á Hlíðarenda koma bæði gæði og reynsla.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert