Þægilegur sigur Eyjamanna

Frá leik Gróttu og ÍBV í kvöld.
Frá leik Gróttu og ÍBV í kvöld. mbl.is/Styrmir Kári

Grótta og ÍBV áttust við í fjórðu umferð Olís deildar karla í handknattleik í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi í gær. Liðin höfðu bæði unnið einn leik í fyrstu þremur umferðunum og sátu í sjöunda og áttunda sæti deildarinnar fyrir leikinn.

Lokatölur í leiknum urðu 34:23 Eyjamönnum í vil sem eru þar með komnir með fjögur eftir jafn marga leiki.

Theodór Sigurbjörnsson var markahæstur í liði ÍBV með átta mörk, en Aron Dagur Pálsson var atkvæðamestur í liði heimamanna með sex mörk. 

Grótta 23:34 ÍBV opna loka
60. mín. Leik lokið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert