Er tíu kílóum léttari

„Vægt til orða tekið þá er maður tíu kílóum léttari eftir þennan langþráða sigur,“ sagði Jón Heiðar Gunnarsson, leikmaður ÍR eftir sigurliðsins á Val í Olís-deild karla í handknattleik í Vodafonehöllinni í kvöld, 27:26.

ÍR hafði aðeins fengið eitt stig úr tíu síðustu leikjum sínum þegar liðið mætti Valsmönnum í kvöld.

„Undanfarnar vikur hafa verið erfiðar. Margir leikirnir hafa tapast naumlega á síðustu mínútum. Það er mjög erfitt andlega. En sem betur fer þá lenti sigurinn réttu megin í kvöld. Dabbi (Davíð Georgsson) klíndi boltanum í samskeytin skömmu fyrir leikslok og innsiglaði sigurinn. Það var hrikalega sætt,“ sagði Jón Heiðar Gunnarsson sem stóð vaktina í vörninni af festu en framliggjandi varnarleikur ÍR-inga sló Valsmenn alveg út af laginu í leiknum.

Nánar er rætt við Jón Heiðar á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert