Rut og Randers í þriðja sætið

Rut Jónsdóttir í landsleik.
Rut Jónsdóttir í landsleik. mbl.is/Styrmir Kári

Rut Jónsdóttir, landsliðskona í handknattleik, og samherjar hennar í Randers komust í kvöld í þriðja sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með naumum útisigri á SK Aarhus, 23:22.

Rut skoraði tvö mörk fyrir Randers í leiknum en lið hennar er nú með 20 stig eftir 16 leiki og fór uppfyrir bæði Viborg og Tvis Holstebro, sem hinsvegar eiga bæði leik til góða. Midtjylland er á toppnum með 24 stig og Esbjerg er í öðru sæti með 22 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert