Vignir og félagar í bikarúrslit

Vignir Svavarsson er kominn í úrslit bikarkeppninnar í Danmörku með …
Vignir Svavarsson er kominn í úrslit bikarkeppninnar í Danmörku með Midtjylland. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Vignir Svavarsson og félagar í Midtylland skelltu toppliði dönsku úrvalsdeildarinnar, Team Tvis Holstebro í undanúrslitum dönsku bikarkeppninnar í handknattleik í dag og leika til úrslita í keppninni á morgun.  Midtylland skoraði fjögur síðustu mörk leiksins og vann, 27:25, eftir að hafa verið þremur mörkum undir í hálfleik, 13:10.

Vignir skoraði eitt mark í leiknum og gamli félagi hans úr Haukum, Sigurbergur Sveinsson, skoraði í tvígang fyrir Team Tvis Holstebro. 

Úrslitaleikurinn hefst klukkan 15 á morgun og geta þeir sem hafa aðgang að TV2 í Danmörku séð leikinn. 

Midtylland mætir GOG í úrslitaleik á morgun. GOG vann Århus Håndbold, 25:23, í hinni viðureign undanúrslitanna í dag. Sigvaldi Guðjónsson var markahæsti leikmaður Árósaliðsins og skoraði 6 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert