Gífurlegur léttir

„Gífurlegur léttir,“ sagði Sigurður Bragason, þjálfari ÍBV eftir nauman eins marks sigur á FH 20-19 í 20. umferð Olís deildar karla í kvöld. 

„Þetta er búin að vera þung vika hjá okkur. Við vorum særðir eftir þetta tap gegn Val í bikarnum. Við erum með stráka sem vilja vinna dollur og leggja sig alla 100% í það og þeir voru bara í sárum. Þetta er mikill léttir fyrir okkur í kringum þá að sjá þá gleðjast hérna inní klefa," sagði Sigurður við mbl.is eftir leik.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.

Sigurður Bragason er hér ásamt Arnari Péturssyni.
Sigurður Bragason er hér ásamt Arnari Péturssyni. Eva Björk Ægisdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert