Guðjón og Aron með glæsimörk (myndskeið)

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði glæsimark í gær.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði glæsimark í gær. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Guðjón Valur Sigurðsson og Aron Pálmarsson skoruðu hvor um sig stórglæsilegt mark í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta um helgina.

Mörkin eru tilnefnd sem tvö af fimm flottustu mörkunum í fyrri leikjum 8-liða úrslitanna. Guðjón skoraði sirkusmark fyrir Barcelona í 29:24-tapinu gegn Kiel, og Aron skoraði með mögnuðu undirhandarskoti í 29:26-sigri Veszprém á Vardar.

Timur Dibirov og Daniil Shiskharev hjá Vardar eru einnig tilnefndir, sem og Stipe Mandalinic hjá Croatia Zagreb sem tapaði 28:20 fyrir Paris Saint-Germain.

Mörkin má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert