Ólafur sænskur meistari

Ólafur Andrés Guðmundsson.
Ólafur Andrés Guðmundsson. Ljósmynd/svenskhandboll.se

Ólafur Andrés Guðmundsson og félagar hans í Kristianstad urðu í dag sænskir meistarar í handknattleik þegar þeir lögðu Alingsås í úrslitaleik, 27:18.

Ólafur skoraði þrjú af mörkum Kristiandstad sem hafði tögl og hagldir allan tímann. Þetta er annað árið í röð sem Kristianstad hampar meistaratitlinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert