Jóhanna Helga til Selfoss

Jóhanna Helga ásamt Guðrúnu Hrafnhildi Klemenzdóttur og Magnúsi Matthíassyni úr …
Jóhanna Helga ásamt Guðrúnu Hrafnhildi Klemenzdóttur og Magnúsi Matthíassyni úr stjórn deildarinnar. mynd/hkd.Selfoss

Jóhanna Helga Jensdóttir hefur skrifað undir eins árs samning við handknattleiksdeild Selfoss.

Jóhanna kemur frá FH þar sem hún skoraði 52 mörk í 26 leikjum á síðustu leiktíð en þar áður spilaði hún fyrir Hauka. Hún hefur spilað með yngri landsliðum Íslands og spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Aftureldingu þegar hún var 15 ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert