Bjarki Már Elísson og samherjar hans í Füchse Berlin unnu öruggan sigur á Balingen á heimavelli, 31:20, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag.
Erlingur Richardsson er þjálfari Berlinarliðsins en Rúnar Sigtryggsson stýrir Balingen.
Heimamenn voru með undirtökin allan leikinn í dag og höfðu tveggja marka forskot að loknum fyrri hálfleik, 13:11. Góður kafli þeirra um miðjan seinni hálfleik réði úrslitum, en Füchse breytti stöðunni úr 17:15 í 24:15 og úrslitin voru ráðin.
Bjarki Már var markahæstur heimamanna, en hann skoraði sjö mörk í leiknum. Füchse er með fullt hús stiga eftir fjóra leiki í deildinni.