Einar Ingi og félagar úr leik

Einar Ingi Hrafnsson í leik með Arendal.
Einar Ingi Hrafnsson í leik með Arendal. Ljósmynd/oifarendal.no

Einar Ingi Hrafnsson og félagar hans hjá norska liðinu Arendal féllu úr leik í annarri umferð EHF-bikarsins í handknattleik karla eftir 27:26 tap liðsins gegn rúmenska liðinu Timisoara í dag. 

Einar Ingi skoraði eitt mark fyrir Arendal í leiknum í dag. Timisoara hafði betur í fyrri leik liðanna, 24:23, fyrir sléttri viku og vann þar af leiðandi tveggja marka sigur í viðureign liðanna.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert