Ragnar atkvæðamikill í sigri

Ragnar Jóhannsson og Aðalsteinn Eyjólfsson eru á mála hjá Hüttenberg.
Ragnar Jóhannsson og Aðalsteinn Eyjólfsson eru á mála hjá Hüttenberg. Thomas Wißner, Leihgestern

Ragnar Jóhannsson skoraði fimm marka Hüttenberg í 29:24 sigri liðsins gegn Rostock í þýsku B-deildinni í handbolta karla í dag. Hüttenberg sem leikur undir stjórn Aðalsteins Eyjólfssonar er í þriðja sæti deildarinnar með 12 stig eftir þennan sigur. 

Oddur Grétarsson skoraði fimm mörk fyrir Emsdetten sem tapaði 24:23 fyrir Bad Schwartau. Fannar Friðgeirsson skoraði tvö mörk fyrir Hamm sem tapaði 27:26 fyrir N-Lübbecke. Emsdetten er í 14. sæti deildarinnar með fimm stig og Hamm er í 16. sæti deildarinnar með fjögur stig.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert